Öryggismyndavélar við Áslandsskóla

3.9.2020

Stafrænar öryggismyndavélar eru uppsettar eða í uppsetningu í skólanum. Um er að ræða öryggismyndavélar sem eru staðsettar utanhúss [og í einhverjum tilfellum innanhús við innganga skólans]. Í því felst rafræn vöktun á skólabyggingunni og skólalóðinni sem er gert í þágu öryggis og í þeim tilgangi að varna því að eigur séu þar skemmdar eða þeim stolið.

Myndefni verður einungis skoðað ef upp koma atvik er varða eignavörslu eða öryggi einstaklinga, s.s. þjófnaður, skemmdarverk eða slys. Heimild til skoðunar er aðgangsstýrð en myndefni er vistað að hámarki í 90 daga og því er eytt að þeim tíma loknum.

Vöktunin er útfærð í samræmi við lög nr. 90/2018 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Merkingar með viðvörunum um rafræna vöktun eru uppsettar á hinum vöktuðu svæðum.

Til kynningar og nánari fræðslu varðandi eftirlitið sem hér um ræðir skal bent á reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla sem taka til þessarar vöktunar:

· Reglur Hafnarfjarðarkaupstaðar um rafræna vöktun öryggismyndavéla.

Einnig er bent á að almennar upplýsingar um rafræna vöktun ásamt leiðbeiningum er að finna í bæklingi á vef persónuverndar þar sem hægt er að fá frekari upplýsingar um viðfangsefnið:

· Leiðbeiningar Persónuverndar um rafræna vöktun.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is