Skólaþing 2015
Skólaþing verður í Áslandsskóla þriðjudaginn 10. nóvember en þetta er þriðja skólaþingið sem haldið er í skólanum. Á fyrri skólaþingum hafa margar góða hugmyndir komið fram og má þar nefna salatbar í mötuneyti, stólar á morgunstundum unglingadeildar og rassaþotur fyrir yngri nemendur.
Okkur hér í Áslandsskóla finnst mikilvægt að halda skólaþing og gefa öllum í skólasamfélaginu tækifæri á að taka þátt í að móta skólasamfélagið, koma með ábendingar og skapa skipulagðan samráðsvettvang.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla