Tilkynning frá Hafnarfjarðarbæ vegna fyrirhugaðra verkfalla
Foreldrar og forráðamenn eru, sem fyrr segir, hvattir til að fylgjast vel með fréttum því grunnskólarnir munu vera með eðlilega starfsemi ef verkfall verður slegið af.
Mikilvægt er að allir hlutaðeigandi fylgist vel með fréttum af fyrirhuguðu verkfalli. Öll starfsemi sveitarfélagsins mun haldast óbreytt ef ekki verður af verkfalli.
Kæru foreldrar og forráðamenn
Eins og kunnugt er hafa Starfsmannafélag Hafnarfjarðar og BSRB boðað til verkfalla frá og með mánudeginum 9. mars. Ef til verkfalla kemur mun áhrifa þeirra gæta í skólastarfinu og biðjum við ykkur að lesa vel upplýsingar hér að neðan.
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar hefur boðað verkföll á fyrirfram ákveðnum dagsetningum; dagana 9. og 10. mars, 17. og 18. mars, 24. mars, 26. mars, 31. mars og 1. apríl. Hafi samningar ekki tekist fyrir 15. apríl munu allir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem starfa hjá ríki og sveitarfélögum fara í ótímabundið allsherjarverkfall þar til samningar hafa tekist.
Um er að ræða um 660 starfsmenn hjá Hafnarfjarðarbæ sem flestir starfa innan grunnskóla sveitarfélagsins. Fyrirhugað verkfall nær m.a. til húsumsjónarmanna, ritara, skólaliða, frístunda- leiðbeinenda og stuðningsfulltrúa. Sérstök athygli er vakin á því að frístundaleiðbendur og starfsfólk frístundaheimila og félagsmiðstöðva mun frá og með mánudeginum 9. mars fara í ótímabundið verkfall sem þýðir að allt frístunda- og félagsstarf, fyrir og eftir skóla, fellur niður þar til samningar hafa tekist.
Áhrif á skólastarfið í Áslandsskóla – LESIST VEL
Ef til verkfalla kemur þá munu áhrif m.a. verða með
eftirfarandi hætti:
Mánudagur
9. mars og þriðjudagur 10. mars
· Hefðbundið skólastarf. Nemendur Áslandsskóla mæta til kennslu fyrstu tvær kennslustundir dagsins á mánudag og þriðjudag
· Samræmt próf í íslensku í 9. bekk. Nemendur í 9. bekk sem eiga að taka samræmt próf í íslensku þriðjudaginn 10. mars mæta í skólann til að taka prófið og fara heim eftir próf. Nemendur í 9. bekk mæti í skólann kl. 8:10 þennan dag eins og áður hefur verið gefið út.
· Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins. Sundlaugar, íþróttahús og menningarstofnanir bæjarins verða lokaðar á fyrirfram ákveðnum dagsetningum. Bókasafn Hafnarfjarðar verður opið frá kl. 10-17 með fyrirvara um skerta þjónustu
Ótímabundið verkfall frá og með 9. mars
· Frístundaheimilið Tröllaheimar. Frístundaheimili verður lokað ótímabundið, bæði fyrir og eftir skóla, frá og með mánudeginum 9. mars. Ekki verður innheimt fyrir þjónustu sem fellur niður vegna verkfalls
· Félagsmiðstöðin Ásinn. Félagsmiðstöð verður lokuð ótímabundið frá og með mánudeginum 9. mars
Foreldrar og forráðamenn eru, sem fyrr segir, hvattir til að fylgjast vel með fréttum því grunnskólarnir munu vera með eðlilega starfsemi ef verkfall verður slegið af.
Með góðri kveðju
Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri Áslandsskóla
- Eldri færsla
- Nýrri færsla