Útskrift nemenda úr 10. bekk
Útskrift nemenda úr 10. bekk Áslandsskóla skólaárið 2019-2020 verður þriðjudaginn 9. júní kl. 12.00.
Nemendur mæta til umsjónarkennara í heimastofu kl. 11.30.
Einungis foreldrum útskriftarnemanda er heimilt að mæta með á útskrift að þessu sinni vegna aðstæðna í þjóðfélaginu og tilmæla frá yfirvöldum. Ég vil biðja foreldra/forráðamenn að virða það.
Í gegnum tíðina hafa útskriftarnemendur komið með góðgæti á hlaðborð við útskrift en að vegna aðstæðna mun skólinn sjá um veitingar að þessu sinni.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla