Vinavika í Áslandsskóla

9.11.2015

Í dag hófst vinavika í Áslandsskóla.
Ýmislegt verður á dagskrá í vikunni.

Þriðjudag verður skólaþing haldið í Áslandsskóla - fundarefni og skipulag sjáið þið á vefnum okkar.

Miðvikudag og fimmtudag verða fjölgreindaleikar í fyrsta skipti í Áslandsskóla.  Þá er öllum árgöngum blandað í lið og kemur fyrirliði hvers liðs úr nemendahópi 10. bekkja.  Hver einasti kennari í skólanum er með stöð og eru þær margvíslegar og fjölbreyttar.

Dagskrá lýkur kl. 13.20 miðvikudag og fimmtudag og skóla lýkur.  Þeir nemendur sem eru skráðir í frístundaheimilið Tröllaheima fara þangað á þeim tíma.

Föstudag er sameiginleg morgunstund í Áslandsskóla.

Sem sem margt skemmtilegt brallað í vinavikunni.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is