Foreldrarölt

Af hverju foreldrarölt?

Af hverju foreldrarölt

Fyrst og fremst vegna þess að okkur er ekki sama. Við viljum varna því að börnin okkar lendi í vanda. Við viljum líka koma í veg fyrir hópamyndanir eftir lögleglan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem börn hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Líkur á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða minnka þegar fullorðnir eru nálægir. Nærvera fullorðinna gefur unglingunum tækifæri til að leita aðstoðar ef á þarf að halda.

Af hverju þú?

Langflestir foreldrar standa vel að sínum börnum og þeir eru ekki úti eftir að lögbundnum útivistartíma lýkur. Margir spyrja því hvers vegna þeir eigi að fara út af heimilinu frá sínu barni til að passa annarra manna börn? Með því að taka þátt í foreldrarölti höfum við áhrif á hverfisbraginn og það félagslega umhverfi sem við, og börnin okkar, búum við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir einhvers konar ofbeldi, því betra og öruggara er umhverfi okkar. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi og eigum að sýna þeim sem eiga í vanda að okkur er ekki sama. Auk þessa kynnumst við fleiri foreldrum, við höfum gott tækifæri til að ræða sameiginleg áhugamál og, síðast en ekki síst, við eigum saman ánægjulega stund á heilsubótargöngu um hverfið okkar!

Framkvæmd foreldraröltsins

Bekkjafulltrúar taka það að sér að manna röltið eða fá aðra foreldra í bekknum til að sjá um það.
Mæting á röltið er við Ásinn félagsmiðstöð Áslandsskóla. Röltarar fara um hverfið fótgangandi (geta farið akandi ef fáir) og líta eftir hvort ekki sé allt með felldu, engin samansöfnuður barna eða unglinga á að eiga sér stað eftir lögboðinn útivistartíma.

Það er kort hér fyrir neðan af leið sem gott er að fara.

Yfirleitt skal við það miðað að rölt verði á föstudagskvöldum frá kl. 21:45 til miðnættis. Ef hinsvegar lítið sem ekkert er um unglinga á ferli má stytta til 23:30. Ef sérstakur viðburður er í bænum á laugardagskvöldi s.s. dansleikur er ástæða til að skoða hvort ekki eigi að rölta frekar það kvöld.

Tímasetningin tekur mið af útivistartíma 13-16 ára unglinga, en þeir mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22:00 frá 1. september til 1. maí og eftir 24:00 frá 1. maí til 1. september.

Áríðandi er að skila skýrslu um röltið, hún þarf ekki að vera löng á foreldrafelag@aslandsskoli.is og geir@hafnarfjordur.isHvatningarverðlaun fyrir þann bekk þar sem flestir foreldrar rölta

 

Skipulag foreldrarölts Áslandsskóla veturinn 2023 - 2024

Foreldrarölt, tilkynningar og upplýsingar

Foreldrarölt Áslandsskóla - Handbók foreldra

Foreldrarölt Áslandsskóla kort 

Foreldrarölt leiðarvísir fyrir foreldra

Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti?

  • Við eigum að sjást. Gott er að vera í endurskinsvestum sem flestir skólar útvega.
  • Við eigum helst ekki að vera færri en fimm saman, en röltum þó einhvern vanti.
  • Við þurfum að vera til taks ef unglingarnir þurfa á okkur að halda.
  • Við þurfum að geta hlustað og leiðbeint án þess að stjórna.
  • Við hringjum á lögreglu ef upp koma árekstrar, ofbeldi, slys, vímuefnaneysla og -sala eða annað sem krefst afskipta. Tökum fram að við séum foreldrar á rölti.
  • Við ræðum ekki málefni einstaklinga sem við mætum á foreldrarölti við óviðkomandi.

Nánari upplýsingar um foreldrarölt veitir stjórn foreldrafélags Áslandsskóla póstfang: foreldrafelag@aslandsskoli.is

Tillaga að e­mail á foreldra í bekknum

Sæl öll sömul,

Foreldrarölt okkar bekkjar er á morgun, það væri frábært að fá a.m.k. 4 með. Það er mæting kl 21 :45 í
Ásinn. Rölt er um hverfið í rúmlega klukkutíma.
Mæting er í félagsmiðstöðina Ásinn (á unglingagangi). Eftir röltið er mikivægt að einn úr hópnum sendi skýrslu á foreldrafelag@aslandsskoli.is og geir@hafnarfjordur.is og segið frá í örfráum orðum hvernig röltið gekk. Allar frekari upplýsingar eru inn á síðu skólans undir ,,foreldrar,, og þar undir ,,foreldrarölt,,

Kær kveðja
Bekkjartenglar
XXXXXXX (mamma XXXXXX) og xxxxx (pabbi XXXXXX)


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is