Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2018

7.2.2018

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn 2018 er í dag. Slagorð dagsins í ár er: Sköpum, tengjum og deilum virðingu: betra net byrjar hjá þér! Eða eins og það útleggst á ensku: Create, connect and share respect: A better Internet starts with you!

Yfir 130 þjóðir um heim allan munu standa fyrir skipulagðri dagskrá þennan dag. Netöryggismiðstöðvar 30 Evrópuþjóða, sem mynda samstarfsnetið Insafe og yfir 100 önnur lönd munu leiða saman ýmsa hagsmunaaðila til þess að vekja athygli á netinu og ræða hvernig þeir geta lagt sitt af mörkum til þess að gera netið betra.

Í tilefni dagsins mun SAFT opna nýja heimasíðu og kjölfarið setja inn nýtt kennsluefni fyrir leik, grunn- og framhaldsskóla landsins ásamt heilræðum og leiðbeinandi efni til foreldra #Falsfréttir  #Samfélagsmiðlar #Hatursorðræða #Sexting #Samskipti #Einelti #Streymi #Netglæpir #Snjalltæki

Hægt er að fylgjast með viðburðum dagsins á Fésbókar- og Twittersíðum SAFT. Við hvetjum alla sem taka þátt í deginum til að segja frá viðburðum á þessum miðlum og merkja #SAFT og #SID2018. Einnig má sýna stuðning við Alþjóðlega netöryggisdaginn með því að taka þátt íThunderclap.

Við vekjum einnig athygli á því að evrópska samstarfsnetið Insafe hefur opnað fyrir skráningu á nýtt netnámskeið um netöryggi. Námskeiðið er öllum opið en meginmarkhópurinn er kennarar. Farið er yfir fjölbreytt efni, m.a. falsfréttir, hatursorðræðu, neteinelti og netsambönd. Við hvetjum alla sem hafa áhuga á betra neti og að auka eigin skilning og hæfni til að skrá sig. Opið er fyrir skráningu hér.

Góðar netkveðjur með von um betra net,

SAFT – Samfélag, fjölskylda og tækni.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is