Áslandsskóli styrkir Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar

Alls 2.661.984.- krónur á ellefu árum

21.12.2017

Undanfarin ellefu ár hefur skólasamfélagið í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla, miðvikudaginn 20. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.  Í ár söfnuðust 244.543.- krónur.

Á ellefu árum hefur skólasamfélagið í Áslandi því styrkt Mæðrastyrksnefnd um alls 2.661.984.- krónur. Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is