Blár dagur 6. apríl

5.4.2018

Föstudaginn 6. apríl 2018 verður Blái dagurinn haldinn hátíðlegur í fimmta sinn.

Átakið miðar að því að fræða og upplýsa almenning um einhverfu og auka þannig skilning, viðurkenningu og samþykki á því sem er “út fyrir normið”. Því öll erum við einstök og höfum okkar styrkleika og veikleika og það á við um einhverfa eins og alla aðra. Einhverfa er alls konar! Því vonum við að nemendur og starfsfólk Áslandsskóla sýni lit með því að klæðast bláu á bláa daginn og styrkja einhverf börn.

Fögnum fjölbreytileikanum! Því lífið er blátt á mismunandi hátt!

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is