Fjölgreindaleikar Áslandsskóla 2017

Framúrskarandi liðsheildir og kærleiksríkir fyrirliðar

15.11.2017

Fjölgreindaleikar voru í Áslandsskóla í dag og í gær.

Á fjölgreindaleikum er skólastarf brotið upp. Kennarar settu upp fjölbreyttar stöðvar um allan skóla þar sem hæfileikar hvers og eins nemanda og kennara fengu að njóta sín.

Öllum nemendum skólans var blandað í lið, þannig unnu nemendur í 1.-10. bekk saman og skipuðu saman hvert lið.  Allir nemendur fóru einu sinni á hverja stöð.

Hvert lið hafði fyrirliða úr hópi elstu nemenda skólans sem stýrði sínu liði.

 

Það er sannarlega eitt af því allra skemmtilegast við fjölgreindaleikana,
að sjá hve vel elstu nemendurnir hugsa um þá yngstu í sínum hópi, leiðbeina þeim og sýna þeim virðingu, umhyggju og kærleik.

 

Fjölgreindaleikarnir byggja á fjölgreindum taugasálfræðingsins Howards Gardners.
Gardner skipti greind upp í, fyrst sjö en síðar átta flokka og hélt því fram að við gætum verið snjöll í mörgum flokkum en þó sterkust í einum flokki.


Eins og í mörgu öðru er mikilvægt að þróa sig á þeim sviðum sem við erum hvað sterkust, en einnig þeim sem við erum ekki eins sterk. Þannig gæti einstaklingur verið: tónsnjall, sjálfssnjall, líkamssnjall, umhverfissnjall, myndsnjall, orðsnjall, félagssnjall, talna- eða röksnjall.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is