Framlag til Mæðrastyrksnefndar

12.12.2019

Við í Áslandsskóla höfum haft þann sið undanfarin tólf skólaár að hver nemandi/starfsmaður mæti með lokað umslag með frjálsu framlagi til Mæðrastyrksnefndar í stað pakkaleikja fyrir jólin.

Nemendur afhenda sínum umsjónarkennara framlag sitt mánudaginn 16. desember eða koma með það á skrifstofu skólans.

Þessi hugsun okkar tengist einni af hornstoðunum okkar fjórum, þjónustu við samfélagið.  Fjármunum verður síðan safnað saman og þeir afhentir fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar á sal skólans föstudaginn 20. desember kl. 12.50.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is