Göngum í Áslandsskóla

Áslandsskóli tekur þátt í Göngum í skólann

3.9.2018

Áslandsskóli  tekur þátt líkt og venjulega í Göngum í skólann, verkefni á vegum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, Embætti landlæknis, mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Ríkislögreglustjóra, Samgöngustofu, Slysavarnarfélagsins Landsbjargar og Heimilis og skóla.

 Göngum í skólann verður sett miðvikudaginn 5. september. Megin markmið verkefnisins er að hvetja nemendur til þess að ganga eða hjóla til og frá skóla.  Með því er verið að auka færni nemenda til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar. Að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir vistvænan ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er. Á síðasta ári tóku milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef þess www.gongumiskolann.is


Göngum í Áslandsskóla

 Skólinn hefur nú þegar verið skráður til leiks og hvetjum við alla til þess að taka þátt. Verkefnið stendur formlega yfir í tvær vikur hjá okkur. Kennarar skrá ferðamáta nemenda sinna á hverjum degi frá 5. september til 19. september.  Allir bekkir fá verðlaunaskjal en einnig er keppni um GULLSKÓINN en hann er afhendur þeim bekk sem stendur sig hvað best í þessu verkefni.

 Við hvetjum ykkur kæru foreldrar/forráðamenn til þess að nýta ykkur verkefnið og þá umræðu sem skapast til þess að ræða þessi mál við börnin ykkar og fara öruggustu leið í skólann með yngstu börnunum. Börnin geta gengið, hjólað eða komið á hlaupahjóli í skólann en við viljum vekja athygli á því að við getum ekki geymt hlaupahjólin inni í skólanum og því þurfa þau að koma með lása til þess að læsa þeim hér fyrir utan

 Verum endilega opin og jákvæð og nýtum haustið til að vekja athygli á hreyfingu og öryggi barnanna okkar á leiðinni í skólann. 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is