Menningardagar í Áslandsskóla 2015

12.3.2015

Ágætu forráðamenn,

Dagana 16. - 20. mars eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Tækni og vísindi er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og vinna að fjölbreyttum verkefnum.

Mánudag, þriðjudag og miðvikudag er skóladagur fyrir 1.-10. bekk frá 8.10 - 13.20.
Hefðbundin stundaskrá gildir ekki þessa daga.

Fimmtudaginn 19. mars er opið hús í Áslandsskóla frá kl. 12:00 - 17:00 en þá er sýning á afrakstri menningardagana og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans og m.a. sýna nemendur í   3. bekk söngleikinn Latabæ. Nánari dagskrá kemur síðar. Einnig verður kaffihús á vegum 10. bekkja á efri hæðinni.
Þennan dag (fimmtudaginn 19. mars) er ekki hefðbundið skólastarf, nemendur mæta eingöngu eftir hádegi í u.þ.b 30 til 60 mínútur og munu umsjónarkennarar senda heim upplýsingar um mætingu og skólatíma nemenda sinna þann dag. Þeir nemendur sem eiga alla jafna dvöl í frístundaheimili fara þangað, en aðrir eru á ábyrgð forráðamanna.


Þeir foreldrar sem hafa áhuga á að koma við og aðstoða á menningardögum eru hjartanlega velkomnir. Vinsamlegast hafið samband við umsjónakennara, vegna þess.

Við hlökkum til að sjá sem flesta á sýningardaginn, bæði til að njóta þess sem boðið verður uppá og gæða sér á kræsingum á kaffihúsi elstu nemenda skólans.

Virðingarfyllst,
Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is