Netskákmót fyrir alla krakka

15.4.2020

Hafnafjarðarbær heldur áfram með netskákmót fyrir alla krakka á grunnskólaaldri á fimmtudögum (16:30) og laugardögum (11:00). Við hvetjum ykkur til að benda ykkar börnum á að taka þátt á skákmótunum. Nú eru um 40 börn skráð í hópinn.

Hér eru skrefin sem þarf að fara í gegnum til þess að taka þátt (mjög einfalt):

  1. Búa til aðgang á www.chess.com (frítt)
  2. Gerast meðlimur í hópnum “Hafnafjörður-skólar”: https://www.chess.com/club/hafnafjordur-skolar
  3. Skrá sig á mótin sem hægt er að gera allt að 60 mínútum áður en þau hefjast.
    Mótin verða einnig auglýst á forsíðu hópsins inná chess.com.

    Dagskrá út apríl:

· Alla fimmtudaga 16:30-17:30
https://www.chess.com/live#r=183805 (Tengill gildir fyrir mótið þann 16. apríl, tenglar verða uppfærðir á forsíðu Mosfellsbær-skólar á chess.com vikulega)

· Alla laugardaga 11:00-12:00
https://www.chess.com/live#r=183808 (Tengill gildir fyrir mótið þann 18. apríl, tenglar verða uppfærðir inná á forsíðu Mosfellsbær-skólar á chess.com vikulega.)

Mælum með að þið notið borðtölvu/fartölvu. Chess.com appið virkar ekki á mótum.

Með von um góðar viðtökur.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is