Janúar 2004

4.1.2004

Kæru nemendur og forráðamenn!

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir ánægjulegt samstarf á liðnu ári.
Árið 2003 var viðburðarríkt í skólanum okkar og margt skemmtilegt sem á daga okkar dreif.
Líklega var þó ánægjulegasti atburðurinn þegar nemendur og starfsfólk skólans söfnuðu til handa þeim sem minna mega sín í stað þess að gefa hvort öðru jólapakka. Upphæðin var afhent Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar þann 19. desember á síðustu jólaskemmtun.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is