Skólakórinn hefur í nógu að snúast núna í desember.
Laugardaginn 1. des tekur kórinn þátt í Syngjandi jólum í Hafnarborg. Kórinn okkar syngur kl. 13:00 og eru allir velkomnir að koma og hlusta á.
Sá skemmtilegi siður hefur komist á að við heimsækjum Hrafnistu fyrir jólin. Við ætlum að vera þar næstkomandi þriðjudag 4. des. kl. 13:30. Með okkur fara nokkrir nemendur sem spila á hljóðfæri,lesa ljóð og sögur. Kór Hrafnistu ætlar að taka lagið með okkur.
Þann 14. des ætlum við svo að fara á leikskólann Tjarnarás og syngja jólalög með krökkunum þar.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla