Reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila í skólasamfélaginu

29.10.2012

{nl}

Mennta- og menningarmálaráðuneyti gaf út í október 2011 reglugerð nr. 1040/2011 um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum.
Hún tekur til réttinda og skyldna aðila skólasamfélagsins í allri starfsemi á vegum skóla, skólabrags, samskipta í skóla, skólareglna og málsmeðferðar vegna brota á þeim. Unnið hefur verið að innleiðingu reglugerðarinnar og m.a. settar ýmsar verklagsreglur og leiðbeiningar, bæði af hálfu ráðuneytisins og sveitarfélaga. Vakin er athygli á frétt sem nýlega var birt á heimasíðu ráðuneytisins með samantekt um slíkt, sjá nánar á þessari vefslóð http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/forsidugreinar/nr/7113.

Í framangreindri reglugerð er í fyrsta sinn sett sérstakt ákvæði um fagráð í eineltismálum sem formlega var sett á laggirnar í mars sl. og kynnt fyrir skólasamfélaginu með frétt á heimasíðu ráðuneytisins, sjá
http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/6724.

Í fagráðinu eru Arnheiður Gígja Guðmundsdóttir náms- og starfsráðgjafi, Páll Ólafsson félagsráðgjafi sem jafnframt er formaður ráðsins og Þórkatla Aðalsteinsdóttir sálfræðingur. Fagráðið hefur nú útbúið sérstakt eyðublað um vísun mála til ráðsins og er það aðgengilegt á heimasíðunni www.gegneinelti.is, sjá eyðublaðið:
http://www.gegneinelti.is/fagradid/visun-mals?CacheRefresh=1

Fagráðið væntir þess að með eyðublaðinu verði auðveldara fyrir skólastjóra og foreldra að senda mál til fagráðsins, en þangað eiga ekki erindi önnur mál en þau sem ekki hefur náðst að leysa innan skóla eða sveitarfélags þrátt fyrir aðkomu allra hlutaðeigandi aðila í heimabyggð. Öll mál sem send verða til fagráðsins með hjálögðu eyðublaði verða skoðuð og metin og síðan tekin fyrir í fagráði að uppfylltum skilyrðum um málsmeðferð eða frekari gagna aflað. Hægt er að senda viðbótargögn vegna mála á netfangið gegneinelti@gegneinelti.is Fagráðið mun síðan afgreiða öll erindi eins fljótt og auðið er í samræmi við eðli máls.

Þann 8. nóvember nk. verður í annað sinn haldinn sérstakur baráttudagur gegn einelti, sjá nánar frétt:
http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/Frettatilkynningar/nr/7054. Ráðuneytið vill hvetja alla til að veita þessum degi sérstaka athygli og leggja þannig sitt af mörkum í þágu baráttunnar gegn einelti. Á vefsíðunni www.gegneinelti.is er hægt að skrifa undir þjóðarsáttmála gegn einelti og beinir ráðuneytið því sérstaklega til allra aðila skólasamfélagsins að nýta tímann fram að baráttudeginum og sérstaklega daginn sjálfan til að hvetja alla til að skrifa undir sáttmálann og taka efni hans til umfjöllunar með viðeigandi hætti.

Ráðuneytið fer þess vinsamlega á leit við alla viðtakendur þessa pósts að koma upplýsingunum á framfæri sem víðast.

{nl}

Kveðja / Heimili og skóli

{nl}

{nl}

cid:image001.jpg@01CDB5CE.5421E3D0

{nl}

{nl}


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is