Framtíð skólahalds í Áslandsskóla - Mætum á Gaflarakaffið 24.mars kl. 11-13 í Lækjarskóla
Foreldrafélag Áslandsskóla hvetur allt foreldrasamfélagið að mæta á Gaflaraþing laugardaginn 24. mars kl. 11.00-13.00 í Lækjarskóla og hlýða á erindi um þau málefni sem snúa að skólamálum bæjarins.
Málefni nemenda í Áslandsskóla er m.a. efst á baugi á Gaflaraþinginu (eins og fram kemur hér að neðan) því nemendum fjölgar á næstu árum í skólanum okkar og bregðast þarf við því strax í haust.
Foreldrar mætið á Gaflaraþingið og hafið áhrif á nærsamfélag ykkar. Hægt er að skila inn áliti, hvort sem þið eruð með eða á móti því sem kynnt verður á laugardag, eða tillögum bæði skriflega eða munnlega með þátttöku í umræðum á eftir erindum á laugardag.
Starfshópurinn um skólaskipan í Hafnarfirði mun fara yfir allar ábendingar og tillögur sem berast og vinna úr þeim. Þátttaka ykkar skiptir því máli.
---
Laugardaginn 24. mars er boðað til Gaflarakaffis um skólaskipan í Hafnarfirði í Lækjarskóla kl. 11-13.
Auglýsingu um málþingið er að finna í viðhengi póstsins.
Tilefni málþingsins er sérstaklega að ræða þrjú mál í skólaumhverfinu í Hafnarfirði:
1. Hvort unglingaskóli fyrir hverfi í uppbyggingu (Ásland, Vellir) komi frekar til greina en að byggja yngri barna skóla eða útibú við grunnskóla (Áslandsskóli, Hraunvallaskóli) vegna væntanlegrar fjölgunar íbúa í þeim hverfum á næstu árum.
2. 5 ára börn/deildir verði í húsnæði grunnskóla þar sem það er til staðar (Setbergsskólahverfið nefnt sem raunhæfur möguleiki nú). Þetta myndi spara leikskólabyggingar, en tryggja verður að gæði skólastarfsins verði ekki minni.
3. 2-9 ára grunnskóli verði til sem skólamöguleiki (t.d. í Engidal) frekar en að reka innan sama húsnæðis bæði leikskóla (Álfaberg) og grunnskóla (Víðistaðaskóli) svo til verði nýtt skólaform í Hafnarfirði. Kynning frá Mosfellsbæ, en þar er slíkur skóli í rekstri.
Erindi og umræður verða í málstofum til að hlusta á og heyra sjónarmið um æskilega þróun á skólaskipan fyrir árangursríkt skólastarf í Hafnarfirði.
Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Magnús Baldursson, sviðsstjóri fræðsluþjónustu í Hafnarfirði.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla