Kaffihúsaferð

13.12.2011

Í dag gerðum við okkur dagamun og fórum í kaffihúsaferð. Við gengum niður í bæ og byrjuðum á að dansa í kringum jólatréð í jólaþorpinu. Fórum svo á Kaffi Aroma og fengum heitt kakó og pönnuköku mmmmmm svaka gott. Eftir hressinguna fórum við aftur til baka uppí skóla. Krakkarnir voru heldur betur duglegir að ganga báðar leiðir. Enda voru það sætir krakkar með eplakinnar sem mættu í hádegismat í skólanum í dag.

{nl}

Ég gæsamamma var ansi stolt af krökkunum mínum sem stóðu sig með sóma og voru mjög kurteis og prúð.

{nl}

Þið eigið hrós skilið krakkar..glæsilegt hjá ykkur


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is