Vinabekkur og afmæli

5.11.2011

Það hefur verið nóg að gera hjá okkur í Goðaheimum. Við erum komin með vinabekk en það er 10. bekkur, Ljósheimar. Þau komu til okkar um daginn og spiluðu við okkur og í gær á afmælisdegi skólans komu þau með vinakort til okkar. Það verður framhald á þessu og við eigum eftir að gera ýmislegt með þeim í vetur.

{nl}

Afmæli skólans fór vel fram og allir mættu spariklæddir og skemmtu sér vel í veislunni. Við fengum að heyra nýjan skólasöng og nú þarf að fara að æfa hann :-)

{nl}

Annars gengur allt vel í Goðaheimum enda alltaf nóg um að vera :-)


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is