Foreldradagur og afmælisveisla

22.10.2011

Á morgun miðvikudaginn 26.okt verður foreldradagur í skólanum okkar. Þá mæta nemendur með foreldrum sínum í skólann í viðtal hjá umsjónarkennara.

{nl}

Á fimmtudaginn 27. október ætlum við í Áslandsskóla að gera okkur glaðan dag í tilefni af 10 ára afmæli skólans okkar. Við munum vígja nýjan skólasöng og kveðja þann gamla á morgunstund á sal skólans. Af þessu tilefni ætla nemendur og starfsfólk skólans að mæta spariklædd og að sjálfsögðu með góða skapið í för eins og alltaf.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is