Vinabekkir: Hetjuheimar og Tunglheimar

13.10.2011

5. Hetjuheimar og 10. Tunglheimar hittust í dag.  Tunglheimar höfðu föndrað nafnaarmbönd handa vinum sínum og Hetjuheimar gerðu flott plakat handa 10. bekknum með fallegum setningum um vináttu. Spiluðu þau svo saman í pörum og skemmtu sér konunglega. Ákveðið var að hittast hér eftir einu sinni í mánuði  og gera eitthvað skemmtilegt saman.

{nl}

Einnig á hver nemandi sinn "eigin" vin sem þeir hafa samband við.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is