Bleikur föstudagur
Við hér í Áslandsskóla ætlum að taka þátt í bleikum föstudegi 7. október. Við hvetjum nemendur og starfsfólk til þess að klæðast bleiku í tilefni dagsins, jafnt konur sem karla.
{nl}Frá Krabbameinsfélaginu: Október er mánuður Bleiku slaufunnar, árveknis- og fjáröflunarátaks Krabbameinsfélags Íslands gegn krabbameinum hjá konum.
Okkur þætti vænt um ef þið mynduð taka þátt í þessu með okkur og senda okkur síðan myndir á laila@krabb.is til að setja inn síðurnar okkar, www.krabb.is og www.facebook.com/bleikaslaufan.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla