Fúsi froskagleypir - tilboð til foreldra og forráðamanna í Áslandsskóla

16.9.2011

Foreldrafélaginu barst eftirfarandi tilboð:

{nl}

Leikfélag Hafnarfjarðar sýndi síðasta vetur í Gaflaraleikhúsinu barnaleikritið Fúsa Froskagleypi og býðst nú foreldrum og forráðamönnum í Áslandsskóla miðar á sýninguna á afsláttarkjörum eða  á kr. 1500 sem er 25% afsláttur frá venjulegu miðaverði.

{nl}

Tilboðið  gildir fyrir eftirfarandi sýningar:
Laugardaginn 1. október kl 14:00,
Sunnudaginn 2. október  kl 14:00, 
Laugardaginn 8. október kl 14:00,
Sunnudaginn 9. október kl 14:00,
Laugardaginn 15 október kl 14:00 og
Sunnudaginn 16. október kl:14:00.

{nl}

Athugið að það eru ekki nema 120 sæti á hverri sýningu þannig að þær seljast fljótt.

{nl}

Vinsamlegast hafið samband við Lárus Vilhjálmsson í síma 5655900 eða í 8607481 ef það er áhugi fyrir því að koma. Miðasala Gaflaraleikhússins er einnig opin frá 16-18 virka daga og frá kl 12 sýningardaga. Það er einnig hægt að panta miða beint á midasala@gaflaraleikhusid.is.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is