Vorferð

31.5.2011

Vorferðin okkar á Víðistaðatún var farin mánudaginn 30.maí. Við skemmtum okkur konunglega við hina ýmsu leiki. Við borðuðum hádegismatinn okkar þar sem var gómsætir pizzasnúðar og ávaxtasafi og fengum banana í eftirrétt. Börnin voru algjörar hetjur með að ganga báðar leiðir og enginn kvartaði. Þau sem voru í heilsdagsskólanum þennan dag gengu svo aftur niður í Öldutúnsskóla í heimsókn í heilsdagsskólann þar. Mikið voruð þið dugleg!!!!

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is