VORHÁTÍÐ ÁSLANDSSKÓLA
Vorhátíð Áslandsskóla, laugardaginn 21.maí kl. 11-14
Fjölbreytt dagskrá er í boði og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi:
Kl. 11:00
Setning vorhátíðar á lóð skólans
Kl. 11.05
Áslandsskólahlaupið – mætum öll og sprettum úr spori
Farinn verður stuttur hringur í hverfinu og allir sem ljúka
hlaupi fá verðlaunapening
Kl. 11.30-14:00
Hressar stelpur úr valáfanganum Heilsa og förðun bjóða upp á andlitsmálun
Gómsætar veitingar til styrktar verðandi 9. bekk
Pylsur og gotterí á slikk
Klifurveggur og hoppukastalar – stanslaust fjör
Hinn geysivinsæli veltibíll snýr aftur
Slökkviliðið sýnir brunabílinn
Hjólabraut – mættu með hjólið eða línuskautana!
Sippubönd, húllahringir, boltaspjöld og krítar á staðnum
Kl. 12:00 Skemmtidagskrá á sal skólans
Krakkarnir í 3. bekk syngja lög úr Ávaxtakörfunni
Hildur, nemandi í 10.bekk, syngur lag úr Litlu Hryllingsbúðinni
Skólakórar Áslandsskóla syngja saman 3 vorlög
Kl. 14.00 Vorhátíð lýkur
Hvetjum öll börn, foreldra, ömmur og afa og aðra íbúa í Áslandi að mæta og gera sér glaðan dag.
Vorhátíðarnefndin
- Eldri færsla
- Nýrri færsla