Öskudagur

16.2.2010

Eins og flestum ætti að vera kunnugt er öskudagur á morgun.

{nl}

Á öskudaginn, brjótum við upp skólastarfið og gerum okkur dagamun frá klukkan 8:10 – 11:00 Nemendur mæta í heimastofu en fara ekki í íþróttir, sund né lotur. Skóladegi lýkur kl.11:00.

{nl}

Nemendur mega hafa með sparinesti (sætabrauð og snakk, ekki gos og nammi).

{nl}

Ekki verður hádegisverður þennan dag.

{nl}

Við hvetjum alla til að mæta í búningum/náttfötum en við skiljum vopn eftir heima.

{nl}

 

{nl}

Nemendur í 1. – 7. bekk fara í frímínútur og þurfa því að koma með útiföt.

{nl}

 

{nl}

Tröllaheimar verða opnir fyrir nemendur sem þar eiga pláss frá kl. 11:00. Forráðamenn þeirra barna þurfa að láta vita hvort þeir ætla að nýta sér vistun þennan dag.

{nl}

Eins og getið var um í dreifibréfi þurfti að ganga frá skráningu á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 15. febrúar.

{nl}

 

{nl}

 

{nl}

Skólastjórn


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is