Stærðfræðinámskeið fyrir forráðamenn

17.10.2009

Fyrirhugað er að halda stærðfræðinámskeið fyrir forráðamenn nemenda í 1. – 4. bekk annars vegar og forráðamenn nemenda í 5.- 7.bekk hins vegar, ef næg þátttaka fæst. Á námskeiðunum verður farið stuttlega í stærðfræðihluta Aðalnámskrá grunnskóla og kynntar þær áherslur sem þar koma fram. Síðan verður kynning og kennsla á þeim aðferðum og leiðum sem nemendur læra í skólanum. Í kaffihléinu gefst tækifæri til að skoða bækur og önnur kennslugögn í stærðfræði, vinna nokkur verkefni og að lokum verður fyrirspurnum svarað.
Verð er 1000 kr., á fjölskyldu. Einungis er greitt eitt gjald fyrir hvert námskeið þó fleiri en einn forráðamaður mæti frá viðkomandi nemanda.

{nl}


1.- 4.bekkur, þriðjudaginn 10. nóvember . kl.17:30 – 19:30
Kennarar: Rósa Lyng Svavarsdóttir fagstjóri í stærðfræði, Elín Þórarinsdóttir og Steinunn Jenný Skúladóttir.

5. – 7.bekkur, fimmtudaginn 12. nóvember kl. 17:30 – 19:30
Kennarar: Rósa Lyng Svavarsdóttir fagstjóri í stærðfræði, Halldóra Lára Benónýsdóttir

Nánari upplýsingar koma síðar.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is