Fyrsti fundur skólaráðs

6.10.2009

Fyrsti fundur skólaráðs Áslandsskóla var í morgun.

{nl}

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Fræðsluráð, sbr. 6. gr., getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

{nl}

Ýmis atriði voru rædd á fundinum en í ráðinu sitja:

{nl}

Leifur S. Garðarsson, skólastjóri

{nl}

Geir Gígja, fulltrúi foreldra

{nl}

Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir, fulltrúi foreldra

{nl}

Rannveig Klara Matthíasdóttir, fulltrúi kennara

{nl}

Díana Ívarsdóttir, fulltrúi kennara

{nl}

Björg Gilsdóttir, fulltrúi annars starfsfólks

{nl}

Björgvin Valdimarsson, fulltrúi nemenda.

{nl}

Unnur Elfa Guðmundsdóttir, aðstoðarskólastjóri, ritar fundargerðir.

{nl}

 

{nl}

Næsti fundur ráðsins verður í lok nóvember.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is