Tröllaheimar
{nl}Föstudaginn 19. desember verður skólastarf með sveigjanlegum hætti eins og tilgreint er á skóladagatali, en þá verða jólaskemmtanir.
Heilsdagsskólinn verður því opinn frá kl. 8:00 þann dag, þar sem dagskrá er með óhefðbundnum hætti.
Heilsdagsskólinn er síðan opinn í jólafríi nemenda sem hér segir:
Mánudaginn 22. desember kl. 8:00—17:00
Þriðjudaginn 23. desember kl. 8:00—12:30
Mánudagur 29. desember kl. 8:00—17:00
Þriðjudagur 30. desember kl. 8:00—17:00
Þeir forráðamenn sem hyggjast nýta sér heilsdagsskólann í jólafríi eða breyta viðveru þann 19. desember, verða því að skrá sig á skrifstofu skólans og tilgreina dvalartíma.
Einnig þarf greiðslukvittun að fylgja sem staðfesting þess að greiðsla hafi átt sér stað. Slíkt þarf að berast á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 15. desember. Ekki verður unnt að verða við ósk um dvöl þessa daga berist hún síðar.
Rétt er einnig að geta þess að ákveðinn lágmarksfjölda barna þarf dag hvern til að starfseminni sé haldið úti.
Það skal þó tekið fram að jólafrí er auðvitað frí nemenda frá skóla og oft getur verið gott að hvílast aðeins á skólatengdu starfi svo nemendur komi endurnærðir til baka.
Gjald fyrir hverja klukkustund er 193 krónur—síðan bætist við kr. 170.– pr. máltíð/nesti sem geta mest orðið þrjár pr dag.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla