Til þeirra er minna mega sín

10.12.2008

 Í tengslum við jólahald í skólum eru pakkaleikir á stofujólum gjarnan eitt atriðanna.  {nl}

 Við í Áslandsskóla höfum haft þann sið undanfarin fjögur skólaár, að hver nemandi og hver starfsmaður mæti með lokað umslag með frjálsu framlagi miðvikudaginn 17. desember. 

{nl}

 Nemendur afhenda umsjónarkennara sitt umslag.

{nl}

 Þessi hugsun okkar tengist einni af hornstoðunum fjórum, þjónustu við samfélagið.

{nl}

 Fjármunum verður síðan safnað saman og við lok síðustu skemmtunar á sal skólans, litlu-jólum  í 6. bekk föstudaginn 19. desember, verður sú upphæð sem til hefur safnast afhent fulltrúa Mæðrastyrksnefndar Hafnarfjarðar.

{nl}

 Gert er ráð fyrir því að skólastjóri afhendi fulltrúa Mæðrastyrksnefndar það sem safnast um kl. 13:30 á sal skólans.

{nl}

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is