Ratleikur - fullveldisdagur - sveigjanlegt skólastarf

21.11.2008

Mánudaginn 1. desember er sveigjanlegt skólastarf frá kl. 8:10-12:00 í Áslandsskóla.

{nl}

Þann dag fer fram hinn árlegi skólaratleikur um skólalóðina og nágrenni skólans.

{nl}

Ratleikurinn er ávallt haldinn kringum þennan dag, 1. desember, því þann dag 1918 hlutu Íslendingar fullveldi.

{nl}

Fullveldi felur í sér einkarétt til þess að fara með æðstu stjórn, dómsvald, löggjafarvald og framkvæmdavald, yfir landsvæði eða hópi fólks t.d. þjóð eða ættbálki. Yfirleitt fer ríkisstjórn með fullveldið, einhver álíka stofnun eða jafnvel einstaklingur allt eftir stjórnarfari.

{nl}

Ríki geta haft fullveldi án þess að vera sjálfstæð. Ísland hlaut fullveldi 1. desember 1918 undan Danmörku en varð ekki sjálfstætt land fyrr en 17. júní 1944. Útskýringin er að Íslendingar hlutu fullveldi nema hvað Íslendingar viðurkenndu danska konunginn sem þjóðhöfðingja sinn og utanríkisstefna Íslands var áfram í höndum Dana.

{nl}

 

{nl}

Heilsdagsskólinn opnar um leið og skólastarfinu lýkur þannig að þeir sem eiga dvöl þar alla jafna fara þangað að lokinni dagskrá.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is