Frábær frammistaða starfsfólks í Reykjavíkurmaraþoni
Reykjavíkurmarþon var háð um nýliðna helgi og stóðu starfsmenn Áslandsskóla sig framúrskarandi vel.Alls hlupu 26 starfsmenn ýmist 10km eða hálft maraþon með mjög góðum árangri og náðu settum markmiðum, en þrotlausar æfingar hafa staðið yfir frá því á síðasta skólaári.
Starfsmennirnir hlupu þetta árið til styrktar Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði.
Starfsmenn voru allir í eins hlaupatreyjum sem skólastjóri verslaði á mannskapinn. Glæsilegur hópur sem stóð sig frábærlega.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla