Til forráðamanna barna í Tröllaheimum – heilsdagsskóla Áslandsskóla
Til forráðamanna barna í Tröllaheimum – heilsdagsskóla ÁslandsskólaHafnarfirði 7.11.2007
Efni: Heilsdagsskóli á skipulagsdegi og foreldradegi
Kæru forráðamenn
Skipulagsdagur er í Áslandsskóla 14. nóvember næstkomandi og foreldradagur þann 23.11.2007.
Heilsdagsskóli Áslandsskóla er opinn báða þessa daga frá kl. 8.00. Þeir nemendur sem eiga dvöl frá því að kennslutíma þeirra lýkur alla jafna geta að sjálfsögðu verið í Tröllaheimum á þeim tíma.
Ætli forráðamenn sér að nýta tíma frá kl. 8.00 og að hefðubundnum dvalartíma verða þeir að ganga frá skráningu og greiðslu á umframtímum á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 12.11.2008.
Virðingarfyllst,
Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri
- Eldri færsla
- Nýrri færsla