Sameiginleg morgunstund

21.11.2007

Næsta sameiginlega morgunstund nemenda í Áslandsskóla verður fimmtudaginn 15. nóvember.

Þann morgun hittast allir nemendur skólans á sal og fjallað verður um dygð mánaðarins. Veitt verður viðurkenning fyrir háttvísasta bekk tímabilsins en sá bekkur fær bláa fuglinn, viðurkenningarskjal og bikar til varðveislu.

Forráðamenn eru velkomnir á þessa morgunstund eins og allar aðrar morgunstundir sem eru í viku hverri hjá okkur í Áslandsskóla.

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is