Mjög döpur mæting á skólakynningu í unglingadeild

25.9.2007

Nemendur í unglingadeild stóðu fyrir skólakynningu í morgun á sal skólans. Þar kynntu nemendur skólastarfið í vel undirbúinni kynningu sem þeir höfðu lagt sig fram um að undirbúa framúrskarandi vel.

Undirritaður vill lýsa furðu sinni á mætingu forráðamanna, hún var vægast sagt döpur. Eflaust hafa einhverjir haldbærar skýringar á fjarveru sinni en nemendur áttu svo sannarlega betri mætingu skilið - sé einungis tekið mið af þeirri vinnu sem þeir lögðu í undirbúning.

Ég vil nota tækifærið og þakka nemendum faglegan undirbúning og þeim forráðamönnum sem sáu sér fært að koma fyrir mætinguna.

Leifur S. Garðarsson
Skólastjóri

Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is