MENNINGARDAGAR - HAFIÐ - OPIÐ HÚS
Dagana 12.-15. mars eru menningardagar í Áslandsskóla en þá er uppbrot á hefðbundnu skólastarfi.Þema menningardaganna í ár er HAFIÐ.
Frá mánudegi til miðvikudags í þessari viku verður skólastarf frá 8.10 til 13:10.
Fimmtudagurinn 15. mars er sveigjanlegur skóladagur sem þýðir að vikið er frá hefðbundnum tímasetningum stundaskrár.
Þá er opið hús í Áslandsskóla og sýningar á afrakstri vinnunnar um HAFIÐ. Opið hús verður milli klukkan 12:00 og 17:00.
Þá verður dagskrá á sal skólans auk þess sem elstu nemendurnir starfrækja kaffihús með glæsilegum veitingum sem þau hafa útbúið.
Ágóði af kaffihúsinu rennur til Heimila Litlu Ljósanna á Indlandi / Hjálparstarfs ABC og hluti í ferðasjóð nemenda.
12:00
Setning. Pétur Már Gíslason og Bryndís Thelma Jónasdóttir kynna.
1. bekkur með söngatriði.
Skuggaleikhús hjá 3. og 4. bekk (1 hópur- Halla).
13:00
2. bekkur Söng og dansatriði. Brúðuleikhús 7. bekkur.
14:30
3. og 4. bekkur söngatriði.
Skuggaleikhús hjá 3. og 4. bekk (1 hópur, Halla).
15:30
5. - 6. bekkur Leiklistarhópur með atriði. (Helga Huld)
7. bekkur, brúðuleikhús.
Allir velkomnir að kíkja á afraksturinn sem er glæsilegur og njóta veitinga á Café Ásland.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla