Bryndís Thelma og Pétur Már sigruðu í upplestri
Undankeppni Stóru-upplestrarkeppninnar fór fram í Áslandsskóla í gær.Hátíðarbragur var á keppnishaldi að venju og góður hópur forráðamanna mætti til að fylgjast með.
Bryndís Thelma Jónasdóttir og Pétur Már Gíslason sigruðu í 10 manna úrslitum og taka því þátt í lokakeppninni í Hafnarborg n.k. þriðjudag kl. 17:00.
Allir lesarar stóðu sig með prýði. Það gerðu einnig Frímann Már, Benedikt og Helena sem léku á hljóðfæri á hátíðinni.
Dómarar voru Ingibjörg Einarsdóttir, skrifstofustjóri Skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, Dóra Pétursdóttir kennari í Engidalsskóla en Öldutúnsskóla til margra ára, og Ellý Erlingsdóttir formaður fræðsluráðs Hafnarfjarðar.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla