Skólaslit fyrir nemendur í 1. – 9.bekk eru fimmtudaginn 9.júní.
Útskrift 10.bekkjar er miðvikudaginn 8 . Júní
Skólaslit fyrir nemendur í 1. – 9.bekk eru fimmtudaginn 9.júní.
Nemendur mæta á sal skólans á auglýstum tíma og fara eftir það í
heimastofur með umsjónarkennara og fá vitnisburð vetrarins.
Við bjóðum foreldra velkomna með börnum sínum á skólaslitin.
Tímasetningar eru sem hér segir:
1.bekkur kl. 8:30
2., 3. og 4.bekkur kl.
9:30
5., 6. og 7.bekkur kl.
10:30
8. og 9.bekkur kl.
11:00
Þeir nemendur sem komast ekki á skólaslit geta nálgast vitnisburðinn sinn á skrifstofu skólans föstudaginn 10.júní frá kl. 8:00-15:00.
Útskrift 10.bekkur miðvikudaginn 8 . Júní kl. 16:00
Útskrift 10.bekkjar verður á sal skólans kl. 16.00. Athöfnin tekur um klukkustund og að lokinni útskrift verður boðið upp á veitingar í boði skólans.
Vinsamlega látið umsjónarkennara vita hve margir koma með útskriftarnemandanum.