Sveigjanlegur skóladagur mánudaginn 15. janúar
Mánudagur 15. janúar er prófdagur í unglingadeild og sveigjanlegur dagur í mið- og yngri deild.
Unglingadeildin kemur því aðeins í próf þann dag, 10. bekkur kl. 8:10-10:10 og 8. og 9. bekkur kl. 10:30-12:30.
Yngri- og miðdeild mæta í skólann kl. 8:10-11:10, þá er hádegisverður og síðan fara nemendur heim. Þeir sem eiga vistun í Frístundaheimilinu Tröllaheimum fara þangað að hádegisverði loknum.
- Eldri færsla
- Nýrri færsla