Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi grunnskóla og og leikskóla.

Mánudagurinn 16. mars verður starfsdagur í öllum skólum

13.3.2020

Tilkynning frá sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu er varðar starfsemi grunnskóla og og leikskóla.

Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í dag hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.

Mánudagurinn 16. mars verður starfsdagur í öllum skólum

Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn grunn- og leikskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til. Starfsdagur þýðir að starfsfólk mætir til vinnu en nemendur leikskóla og grunnskóla mæta ekki í skólann þennan mánudag.

Fylgjumst vel með!

Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á síðum sveitarfélaganna og síðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir og aðrar tómstundir barna.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is