Tími til að lesa

3.4.2020

Tími til að lesa

Á dögunum var hleypt af stokkunum lestarverkefni fyrir þjóðina þar sem börn og fullorðnir eru hvött til að nýta til lesturs tíma sem gefst við núverandi aðstæður. Þetta verkefni er samstarfsverkefni Menntamálastofnunar og mennta- og menningarmálaráðuneytisins.Eins og við vitum þá er lestur sérstaklega mikilvægur fyrir börn þar sem lestur er gríðalega stór þáttur í námsárangri. Nú þegar við eigum að ferðast heima um páskana þá er svo sannarlega tími til að gera eitthvað skemmtilegt i tengslum við lestur. Við hér í Áslandsskóla hvetjum alla til þess að taka þátt í verkefninu Tími til að lesa og skrá sig til leiks. Hér á síðunni er einnig páskalestarbingó sem gefur ykkur hugmyndir af hinum ýmsu leiðum til þess að breyta til við lestur og gera hann meira spennandi. 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is