• Mæðrastyrkur 2015

Tvær milljónir til Mæðrastyrksnefndar

18.12.2015

Undanfarin níu ár hefur skólasamfélagi í Áslandsskóla styrkt Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar með framlögum fyrir jólin. Fulltrúar nefndarinnar komu á jólaskemmtun í Áslandsskóla í dag, föstudaginn 18. desember, og tóku við framlagi úr hendi Leifs S. Garðarssonar skólastjóra.Í ár söfnuðust 156.375.- krónur.  Á níu árum hefur skólasamfélagið í fjallinu því styrkt Mæðrastyrksnefnd um 2.098.695.- krónur.Þessi hugsun okkar til þeirra sem minna mega sín tengist einni af fjórum hornstoðum skólans, þjónustu við samfélagið


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is