Skíðaferðinni er frestað.

24.2.2015

Því miður verðum við að fresta skíðaferðinni í dag vegna hvassviðris í Bláfjöllum. Við erum búin að vera í sambandi við starfsmenn Bláfjalla og núna kl. 10 þá fengum við þær upplýsingar að ekki yrði opnað í dag. Allir sem búnir voru að greiða í morgun fá endurgreitt. Nemendur í unglingadeild fá leyfi til þess að fara heim og skila skíðabúnaði og skipta um föt en annars heldur stundatafla sér. Við vonumst til þess að geta bókað annan dag í Bláfjöllum eftir vetrarfrí en við munum senda ykkur frekari upplýsingar um það síðar. Kveðja stjórnendur


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is