Vegna hrekkjarvöku

enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19

29.10.2020

Kæru forráðamenn

Ég vil biðja ykkur að kynna ykkur vel meðfylgjandi upplýsingar frá Hafnarfjarðarbæ.

https://www.hafnarfjordur.is/stjornsysla/frettir/holdum-hrekkjavoku-heima-oryggisins-vegna

Að teknu tilliti til þess að enn er í gildi neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 eru foreldrar og forráðamenn hvattir til að halda upp á hrekkjavökuna með börnum sínum með öðru sniði í ár. Veiran getur auðveldlega smyglað sér á milli staða og einstaklinga enda snertifletirnir margir þegar gengið er hús úr húsi til að fá sælgæti. Áhættan við að fá smit er afar mikil eins og staðan er núna.

Samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin
Við erum öll almannavarnir.
Höldum áfram að vinna að því saman að fækka smitum og komast á betri stað en við erum í dag.
Samstaða er besta sóttvarnaraðgerðin.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is