Yngri deild á fullu
Yngrideild menningardagar
Þegar fréttamennirnir komu á staðinn hjá yngri deild voru sumir krakkar að gera eldflaugar úr klósettrúllum, álpappír og venjulegum lituðum pappír með strimlum hangandi af endanum. Í annarri stofunni voru krakkar að læra um rafmagn t.d. um plús og mínus svo voru þau að kveikja á ljósaperum með rafmagni úr batteríum. 3. bekkur var æfa Latabæjar leikriti sem verður sýnt á fimmtudaginn.