Menningardagar í Áslandsskóla 2017

Söngleikir & tónlist

30.3.2017

Dagana 3. - 6. apríl eru menningardagar í Áslandsskóla. Þá er skólastarfið brotið upp á margvíslegan hátt. Söngleikir og tónlist er þema menningardaganna að þessu sinni, nemendum er skipt í hópa og unnið verður með söngleiki & tónlist  á fjölbreyttan hátt.

Mánudag, þriðjudag og miðvikudag stendur skóladagur yfir frá 8.10 - 13.10.  


Fimmtudaginn 6. apríl er opið hús í Áslandsskóla frá kl. 12:00 - 17:00 en þá er sýning á afrakstri menningardaganna og á vinnu nemenda í vetur. Uppákomur verða á sal skólans og kemur nánari dagskrá síðar. Setning og fyrstu sýningar verða á slaginu 12.00.  Einnig verður hið sívinsæla kaffihús á vegum 10. bekkja á efri hæðinni.
Þennan dag (fimmtudaginn 6. apríl) er ekki hefðbundið skólastarf, nemendur mæta eingöngu eftir hádegi í u.þ.b 30 til 60 mínútur og munu umsjónarkennarar senda heim upplýsingar um mætingu og skólatíma nemenda sinna þann daginn. Nemendur í 1. - 4. bekk verða með atriði á sal en eftir það fara þeir nemendur sem eiga dvöl í heildagsskólann þangað, en aðrir eru á ábyrgð forráðamanna. 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is