Vorhátíð: Fjölbreytt dagskrá - laugardaginn 21.maí 2011

16.5.2011

Vorhátíðarnefndin og stjórn foreldrafélagsins þakkar nemendum, foreldrum, starfsfólki skólans og öðrum gestum fyrir skemmtilegan dag og góða samverustund.

{nl}

Dagskrá:

{nl}

Kl. 11:00
Setning vorhátíðar á lóð skólans

Kl. 11.05
Áslandsskólahlaupið - mætum öll og sprettum úr spori. Farinn verður stuttur hringur í hverfinu og allir sem ljúka hlaupi fá verðlaunapening

Kl. 11.30-14:00
- Hressar stelpur úr valáfanganum Heilsa og förðun bjóða upp á andlitsmálun
- Gómsætar veitingar til styrktar verðandi 9. bekk
- Pylsur og gotterí á slikk
- Klifurveggur
- Hoppukastalar - stanslaust fjör
- Hinn geysivinsæli veltibíll snýr aftur
- Slökkviliðið sýnir brunabílinn
- Hjólabraut - mættu með hjólið eða línuskautana!
- Sippubönd, húllahringir, boltaspjöld og krítar á staðnum

Kl. 12:00 Skemmtidagskrá á sal skólans
- Krakkarnir í 3. bekk syngja lög úr Ávaxtakörfunni
- Hildur, nemandi í 10.bekk, syngur lag úr Litlu Hryllingsbúðinni
- Skólakórar Áslandsskóla syngja saman 3 vorlög

Kl. 14.00
Vorhátíð lýkur

{nl}

Hvetjum öll börn, foreldra, ömmur og afa og aðra íbúa í Áslandi að mæta og gera sér glaðan dag.

{nl}

Sjáumst á laugardaginn,
bestu kveðjur,
vorhátíðarnefndin - Harpa, Henný, Sirrý og Þorkell


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is