Tröllaheimar

15.12.2008

{nl}

Föstudaginn 19. desember verður skólastarf með sveigjanlegum hætti eins og tilgreint er á skóladagatali, en þá verða jólaskemmtanir.

{nl}

{nl}

Heilsdagsskólinn verður því opinn frá kl. 8:00 þann dag, þar sem dagskrá er með óhefðbundnum hætti.

{nl}

{nl}

Heilsdagsskólinn er síðan opinn í jólafríi nemenda sem hér segir:

{nl}

Mánudaginn    22. desember   kl. 8:00—17:00

{nl}

Þriðjudaginn   23. desember   kl. 8:00—12:30

{nl}

Mánudagur   29. desember   kl. 8:00—17:00

{nl}

Þriðjudagur   30. desember   kl. 8:00—17:00

{nl}

 

{nl}

Þeir forráðamenn sem hyggjast nýta sér heilsdagsskólann í jólafríi eða breyta viðveru þann 19. desember, verða því að skrá sig á skrifstofu skólans og tilgreina dvalartíma. 

{nl}

{nl}

Einnig þarf greiðslukvittun að fylgja sem staðfesting þess að greiðsla hafi átt sér stað.  Slíkt þarf að berast á skrifstofu skólans í síðasta lagi mánudaginn 15. desember.  Ekki verður unnt að verða við ósk um dvöl þessa daga berist hún síðar.

{nl}

{nl}

Rétt er einnig að geta þess að ákveðinn lágmarksfjölda barna þarf dag hvern til að starfseminni sé haldið úti.

{nl}

Það skal þó tekið fram að jólafrí er auðvitað frí nemenda frá skóla og oft getur verið gott að hvílast aðeins á skólatengdu starfi svo nemendur komi endurnærðir til baka.

{nl}

{nl}

Gjald fyrir hverja klukkustund er 193 krónur—síðan bætist við kr. 170.– pr. máltíð/nesti sem geta mest orðið þrjár pr dag. 

{nl}

 


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is