Bekkjarkvöld!

19.11.2008

Bekkjarkvöld Baldursheima
Miðvikudaginn 19. nóvember 2008 verður hittingur hjá nemendum, foreldrum og
systkinum barna í Baldursheimum. Mikilvægt að börn komi í fylgd foreldra.
Hittingurinn verður í heimastofu bekkjarins kl. 18-20 og nemendur og
systkini þeirra skreyta piparkökur. Kostnaður á barn sem föndrar er 250
krónur fyrir piparkökur og málningu á þær.
Allir koma með eitthvað gott að borða á sameiginlegt hlaðborð til þess að
gæða sér á og á staðnum verður djús og kaffi.


Áslandsskóli | Kríuási 1, 221 Hafnarfjörður
Sími: 585 - 4600 | Netfang: aslandsskoli@aslandsskoli.is